Rimmugýgur í þúsund ár

 

Senda á facebook

Æfingatörn Rimmugýgjar

18380014Þá er lokið frábærri æfingatörn, sem fór fram dagana 18. til 23. nóvember. Alls tóku um 40 félagsmenn þátt í törninni. Var æft á hverjum degi, 2 tíma á hverjum virkum degi og svo 4 tíma hvorn helgardaginn, alls í 16 tíma.

Þjálfari tarnarinnar var hinn frábæri víkingur Phil Burthem og honum til aðstoðar var æfingahersirinn okkar Helgi Ingason. Æfinga- og fræðslugildið var mikið og kom Phil inn á alla þætti bardagatækinnnar.

Var gaman að sjá hve vel menn tóku eftir og reyndu að yfirfara ný kennd atriði inn í bardagastílinn sinn. Þegar svona margir bardagamenn og konur koma saman má alltaf búast við einhverjum meiðslum en viti menn engin meiðsli voru í þessari törn. Má draga þá ályktun að Rimmugýgjarmeðlimir séu að verða betri í vopnaburði og einnig að þekkja betur styrk sinn og eiginleika.