Rimmugýgur hélt til Reykholts í Biskupstungum yfir hvítasunnu og tóku 50 víkingar þátt í ferðinni að þessu sinni. Voru bardagar sýndir og handverk til sýnis og selt gangandi. Mikið að gestum kom í víkingabúðir Rimmugýgis þessa helgi og virti fyrir sér bardaga eða bara spjallaði við okkur og gerði sig heimakomið í víkingabúðum okkar.
Viljum við þakka framúrskarandi viðtökur sem við fengum hjá fólkinu í Reykholti og sér í lagi þakka þeim á Kaffi Klett fyrir góðar viðtökur.
Hér má sjá myndir úr ferðinni og vonandi bætast fleiri við sem líður á.