Rimmugýgur í þúsund ár

 

Senda á facebook

Inntaka nýliða 2010

rimmaInntaka nýliða hefst aftur 2. september næstkomandi og stendur til 2. desembers. Eru þeir sem hafa áhuga á bardagalist víkinga ásamt að stunda handverk hvattir til að mæta á æfingu hjá Rimmugýg.

Rimmugýgur æfir í verslunarmiðstöðinni Firði við Fjarðargötu í Hafnarfirði öll þriðjudagskvöld og fimmtudagskvöld og hefjast æfingar klukkan 20:00 og standa til 22:00.

Moesgaard og sumarið.

Rimmugygur-Moesgard-2010Rimmugýgur fór til Moesgaard í nágrenni Árósa í Danmörku nú í sumar þar sem við tókum þátt í bardagaæfingum vikuna 26. júlí til 30. júlí og svo bardögum helgina 31. júlí og 1. ágúst. Ferðin gekk mjög vel og var Rimmugýgur með 26 manna hóp í Moesgaard að þessu sinni sem tóku þátt í æfingum og bardögum ásamt að sinna tjaldbúðum. Með í för var kvikmyndatökumaður  að nafni Ægir Jens Guðmumdsson sem er að vinna að heimildarmynd um Rimmugýgi og víkingalífið. Á næstunni munum við birta myndskeið á vefnum sem hann hefur tekið af okkur. 

Hér er hægt að skoða myndri úr ferðinni af Facebook síðunni okkar

Opin Facebook síða fyrir alla

facebookKæru vinir og aðrir sem vilja fylgjast með okkur í starfi og leik. Við höfum opnað Facebook 'Skjáskinnu' síðu sem er opinn öllum sem okkur þykir vænt um og þykir vænt um okkur. Endilega kíkið þangað inn  og sendið okkur skemmtilega línu. Hér er síðan Tengill.

Rimmugýgur á vorhátíð

IMG_0465-116-800-600-80

Rimmugýgur hélt til Reykholts í Biskupstungum yfir hvítasunnu og tóku 50 víkingar þátt í ferðinni að þessu sinni. Voru bardagar sýndir og handverk til sýnis og selt gangandi. Mikið að gestum kom í víkingabúðir Rimmugýgis þessa helgi og virti fyrir sér bardaga eða bara spjallaði við okkur og gerði sig heimakomið í víkingabúðum okkar.

Víkíngahátíð Reykholti

kaffifkletturRimmugýgur heldur í víking um hvítasunnuhelgina og heldur í Reykholt í Biskupstungum. Verður settt upp víkingahátíð og öllu tjaldað til sem hægt er að tjalda til. Kaffi Klettur hefur auglýst grimmt í fjölmiðlum síðustu daga víkingahátið. Endilega kíkið á heimasíðu Kaffi Kletts hér og kynnið ykkur þennan gullfallega stað.

Síða 1 af 3