| Sólstöđuhátíđ víkinga viđ Fjörukrána 12. til 17. júní 2009 |
| ţriđjudagur, 09 júní 2009 | |
|
Víkingahátíðin í Hafnarfirði á vegum Fjörukráarinnar er elsta, stærsta og mikilvægasta hátíð sinnar tegundar sem haldin er á Íslandi. Síðan 1995 hefur Hafnarfjörður og Fjörukráin verið leikvöllur víkinga sem hafa í gegnum tíðina sýnt flesta þætti menningar víkingaaldar, siglingar, handverk, matargerð, leiki, sagnalist, bogfimi, bardaga og tónlist. Hingað hafa komið og tekið þátt í því að heiðra minningu forfeðra okkar þúundir listamanna hvaðanæva að úr Evrópu og Ameríku í gegn um árin. Stundum hefur verið tilefni til að koma með óvænt innskot, stílbrot til að undirstrika enn frekar hvernig nútíminn og víkingar fortíðar geta verið saman í sátt og samlyndi og myndað sterka heild. Allt frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að allt sé sem upprunalegast, að hátíðargestum finnist sem þeir hafi verið færðir þúsund ár aftur í tímann og þeir eins og fyrir einhvers konar kraftaverk séu staddir á sumarkaupstefnu. Skip frá útlöndum hefur komið til hafnar og verið tekið í naust, vörur bornar á land og kaupmenn hafa tekið upp varning sinn og stunda kaupskap. Það er mikið um dýrðir, tónlist, trúðleikar og dansmeyjar, mungát góð eins og segir í fornum bókum og borð svigna undan kræsingum. Síðan þegar allt virðist leika í lyndi kastast í kekki, menn berast á banaspjót og í góðsemi vega menn hver annan.
Fjölskylduhátíð |
| < Fyrri | Nćsti > |
|---|

|
Bardagaæfingar í bílakjallara verslunarmiðstöðvarinnar Fjarðar þriðjudags- og fimmtudagskvöld frá 20.00 til 22.00. Bogaæfingar í Dverg miðvikudagskvöld frá 20.00 til 22.00 Handverk í Dverg tvo fyrstu laugardaga í mánuði frá 13.00 til 18.00 að jafnaði. |
|
www.vikingshop.net er vefverslun þar sem hægt er að versla allskonar vörur tengdar víkingum. |
|
Ef síðan virðist of mjó og efni fer yfir hvert annað þá er hægt að breikka hana með að nota sér <> sem er efst til hægri á síðunni. |