Rimmugýgur | Rimmugýgur |
| miðvikudagur, 07 maí 2008 | |
|
Rimmugýgur er elsta víkingafélag á Íslandi og enn sem komið er það eina sem leggur stund á bardaga með eftirlíkingum víkingavopna. Við erum samansafn ólíkra einstaklinga með mismundandi bakgrunn á ýmsum aldri og af báðum kynjum. Áhuginn á menningu og bardagalist víkinga er það sem hefur sameinað okkur. Við æfum bardagalistina tvisvar í viku, bogmennsku einu sinni í viku og höfum handverksdaga vikulega og oftar ef mikið liggur við. Rimmugýgur tekur ekki afstöðu til trúarbragða eða stjórnmála. Þátttaka í slíku er einkamál einstakra félagsmanna. Á sumrin er okkur að finna á víkingahátíðum, aðallega á Íslandi, eða einhversstaðar í Evrópu.Við tökum að okkur sýningar fyrir ferðamenn, fyrirtæki, uppákomur og í veislum af ýmsu tagi. |