Skip to content
Narrow screen resolution Wide screen resolution Auto adjust screen size Increase font size Decrease font size Default font size

Rimmugýgur í ţúsund ár

Forsíđa arrow Fréttir
Fréttir
Safnanótt 2010
föstudagur, 12 febrúar 2010

SögusafniðNú er safnanótt 12. febrúar 2010. Að venju verður Rimmugýgur staðsettur í Sögusafninu í Perlunni. Sýningin sem er í Sögusafninu er stórskostleg og virkilega vönduð í alla staði. Viljum við hvetja fólk að leggja leið sína í Sögusafnið á safnanótt og skoða sögu íslands setta upp með brúðum sem eru virkilega raunverulegar og útbúnaður þeirra í takt við tímaskeið sem þær koma úr.

Safnanótt er opin frá kl 19:00 til 00:00

Heimasíða safnanótt

 
http://www.vikingshop.net
miđvikudagur, 25 nóvember 2009

http://www.vikingshop.net er ný netverslun sem selur handverk víkinga.

 
Ćfingatörn Rimmugýgjar
miđvikudagur, 25 nóvember 2009

Þá er lokið frábærri æfingatörn, sem fór fram dagana 18. til 23. nóvember. Alls tóku um 40 félagsmenn þátt í törninni. Var æft á hverjum degi, 2 tíma á hverjum virkum degi og svo 4 tíma hvorn helgardaginn, alls í 16 tíma. Þjálfari tarnarinnar var hinn frábæri víkingur Phil Burthem og honum til aðstoðar var æfingahersirinn okkar Helgi Ingason. Æfinga- og fræðslugildið var mikið og kom Phil inn á alla þætti bardagatækinnnar. Var gaman að sjá hve vel menn tóku eftir og reyndu að yfirfara ný kennd atriði inn í bardagastílinn sinn. Þegar svona margir bardagamenn og konur koma saman má alltaf búast við einhverjum meiðslum en viti menn engin meiðsli voru í þessari törn. Má draga þá ályktun að Rimmugýgjarmeðlimir séu að verða betri í vopnaburði og einnig að þekkja betur styrk sinn og eiginleika.

 
Menningadagar í Borgarnesi
sunnudagur, 13 september 2009

Um 20 félagar fóru í Borgarnes laugardaginn 12. september. Sýndum við bardaga kl. 3 og 7 og skemmtilegt frá því að segja að það var fullt að fólki sem mætti til að fylgjast með því. Eftir fyrri bardagann var farið á fyrirlestur um vopn og bardagatækni sem prófessor Willam Short flutti. Á eftir var Einar Kárason með „óábyrgan“ fyrirlestur um vopnaskak í Sturlungasögu. Er óhætt að segja að við víkingarnir erum mjög vel að okkur í öllum þessum fræðum og kom okkur fátt á óvart. Um kvöldið var okkur boðið á sýningu á eintali Einars Kárasonar um Sturlungu þar sem hann fór yfir Sturlungu eins og hann skrifar hana í bókum sínum Óvinafagnaði og Ofsa. Einar gerði sögunum góð skil, enda góður sögumaður, þó svo að sumir okkar séu ekki alveg sammála túlkun hans á Sturlungu. Ferðin var vel heppnuð og ánægjuleg.

 
Hinn íslenski sumarpistill 2009
sunnudagur, 13 september 2009

Gásar

Meðlimir Rimmugýgjar fóru norður á Gásar en þar voru haldnir miðaldadagar dagana 18. – 21 júlí. Gásar voru helsti verslunarstaður á Norðurlandi á miðöldum og er staðarins víða getið í fornritum frá 13. og 14. öld. Alls voru 14 meðlimir á vegum Rimmugýgjar á svæðinu og sýndu handverk, bardaga, bogfimi og ýmislegt fleira. Ásamt Rimmugýgji voru þarna meðlimir Hringhorna, víkingar frá Þingeyri, Búðardal og stór miðaldahópur sem kennir sig við Gása. Einnig voru nokkrir erlendir miðaldahópar. Margir gestir komu og var veðrið upp á sitt besta. Þetta var svona öðruvísi víkingahátíð, góð og skemmtileg tilbreyting frá hinum hefðbundnu hátíðum.

Reykjadalur

Skömmu fyrir verslunarmannahelgi fór vösk sveit víkinga, þeir sem ekki voru í Mosgerði, upp í Reykjadal. Þar hittum við fatlaða vistmenn sem voru búnir að vinna þemavinnu um víkinga. Sýndum við okkar búnað og vorum með vopnakynningu ásamt því að sýna bardaga. Eftir að hafa dvalið þarna í smá tíma fengu krakkarnir að handleika vopnin okkar og svo var hópmyndataka. Það er alltaf gaman að taka þátt í svona verkefni og finna hvað börnin og allir eru þakklátir. Vonum við að vistmenn Reykjadals hafi haft gaman af, og þökkum við þeim kærlega fyrir boðið.

Bogfimimót Hringhorna

Um verslunarmannahelgina var Hringhorni með sitt árlega bogfimimót. Þetta er annað árið sem þeir hafa verið með þessa keppni og má segja að þessi keppni hafi slegið þeirri fyrri við. Alls mættu 11 félagar tengdir Rimmugýgji á svæðið og kepptu í bogfimi. Veðrið var gott pg skotbrautin frábær, en sérstaklega var andinn og félagskapurinn stórkostlegur. Að sjálfsögðu unnu keppendur undir merkjum Rimmugýgjar til verðlauna. Í kvennaflokki vann Hlín Pálsdóttir og Elín Reynisdóttir varð í öðru sæti, og í barna- og unglingaflokki vann Kormákur Ari Hafliðason, okkar maður. Þurfum við karlarnir að fara að æfa okkur betur, því þessir Hringhornar hitta allt sem þeir miða á. Rimmugýgur þakkar kærlega fyrir sig og vonast til að sjá sem flesta á næsta ári undir Akrafjallinu.

 
Ćfingar hefjast
sunnudagur, 30 ágúst 2009

Þriðjudaginnn 1. september hefjast æfingar að nýju eftir ágústhlé. Æft er í bílakjallara verslunarmiðstöðvarinnar Fjarðar í Hafnarfirði, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 20.00 - 22.00.
Nú er tekið á móti nýliðum hjá Rimmugýgi. Það fólk sem hefur áhuga á að æfa bardagalist víkinga er hvatt til að mæta. Við erum með öflugan hóp þjálfara og byggjum á langri reynslu sem við miðlum til nýliða. Nú er tækifæri til að verða hluti af stærsta víkingafélagi landsins og taka þátt í skemmtilegu félagsstarfi. Við ferðumst mikið á sumrin til að taka þátt í víkingahátíðum bæði innanlands jafnt sem erlendis.

Þeir sem hafa áhuga að koma er bent á að mæta á æfingar og tala við okkur og kynnast. Einnig er hægt að senda póst á einhvern af tengiliðum okkar á síðunni. Við erum með góða aðstöðu til æfinga og handverks og hæfa leiðbeinendur.

 
Moesgaard
fimmtudagur, 02 júlí 2009

Rimmugýgur heldur til Moesgaard í Danmörku dagana 18. til 28. júlí. Fara um 20 manns til að taka þátt í einum stærsta víkingamarkaði sem haldin er. Hefur Rimmugýgur farið reglulega síðustu 10 ár til Moesgaard og alltaf er jafn gott að koma þangað.

Ferðumst við með mikinn búnað og reisum tjaldbúðir í skóginum og munu allir frá Rimmugýgi gista í tjöldunum og búa sem víkingar í heila viku.

Hér má sjá upplýsingar um víkingahátíðina í Moesgaard.

 

 
Skjöldur Rimmugýgjar
föstudagur, 26 júní 2009

Hér getur að líta hinn nýja skjöld Rimmugýgjar. Hirðmenn eða fullgildir félagar nota skjöldinn eins og hann er á myndini hér til hliðar. Nýliðar eða gestir Rimmugýgjar nota skjöldinn án axanna.

 
Sólstöđuhátíđ víkinga viđ Fjörukrána 12. til 17. júní 2009
ţriđjudagur, 09 júní 2009

Víkingahátíðin í Hafnarfirði á vegum Fjörukráarinnar er elsta, stærsta og mikilvægasta hátíð sinnar tegundar sem haldin er á Íslandi. Síðan 1995 hefur Hafnarfjörður og Fjörukráin verið leikvöllur víkinga sem hafa í gegnum tíðina sýnt flesta þætti menningar víkingaaldar, siglingar, handverk, matargerð, leiki, sagnalist, bogfimi, bardaga og tónlist. Hingað hafa komið og tekið þátt í því að heiðra minningu forfeðra okkar þúundir listamanna hvaðanæva að úr Evrópu og Ameríku í gegn um árin. Stundum hefur verið tilefni til að koma með óvænt innskot, stílbrot til að undirstrika enn frekar hvernig nútíminn og víkingar fortíðar geta verið saman í sátt og samlyndi og myndað sterka heild.

Lesa meira...
 
Vel heppnuđ hátíđ á Hvolsvelli
miđvikudagur, 03 júní 2009

Rimmugýgur fór til Hvolsvallar helgina 30. maí til 31. maí og héld litla víkingahátíð þar. Voru 32 félagar úr Rimmugýg á Hvolsvelli og settu þar upp litlar víkingabúðir. Komu margir gestir við í búðum okkar og litu á handverk ásamt að ræða við víkinga sem þar voru á kreiki.

Með að ýta á myndina hér til hliðar má sjá myndasafn frá Hvolsvelli.

Myndasafn frá Hvolsvelli.

 

 
Víkingahátíđ á Hvolsvelli
miđvikudagur, 27 maí 2009

Laugardaginn 30. maí heldur Rimmugýgur á Hvolsvöll og slær upp víkingabúðum við Sögusetrið. Gefst gestum tækifæri á að líta inn í heim víkinga. Verður handverk til sýnis og sölu ásamt bardagasýningum.

Dagskráin

Opið er frá kl. 13.00 til 19.00
Bardagar verða kl. 14.00, 16.00, 18.00

 

 
Íslandsmót í bogfimi 2009
mánudagur, 23 mars 2009

Víkingafélögin Rimmugýgur og Hringhorni tóku þátt í Íslandsmóti í bogfimi helgina 21. og 22. mars síðastliðinn. Í fyrsta sinn var keppt í langbogaflokki. Hann var eins og sérsniðinn fyrir víkinga, enda voru allir keppendur í þeim flokki annað hvort Rimmugýgjarmenn eða Hringhornar. Eins og sérst á stigatöflunni var keppnin mjög tvísýn og spennandi, sérstaklega í karlaflokki. Alls voru 32 keppendur skráðir til leiks á mótinu þar af 12 í recurve flokki, 5 í compound flokki og 14 í langbogaflokki. Mótið stóð yfir í tvo daga og skotið 60 örvum hvorn dag. Skotið var af 18 metra færi.
Keppendur í recurve flokki skutu á 40 cm skotskífu Í compound flokki var skotið á svokallaða „Tripple“ skífu. Í langboga og unglingaflokki var skotið á 60 cm skífu.

Við óskum fyrstu Íslandsmeisturum víkingafélaganna tveggja þeim Helga Hafsteinssyni Hringhorna og Elínu Reynisdóttur Rimmugýgi innilega til hamingju.

Úrslit mótsins í keppni langboga voru annars sem hér segir.


Langbogi. Opinn flokkur karla.

Helgi Hafsteinsson

Hringhorni

445

Bárður Smárason

Rimmugýgur

440

Guðmundur Sigurðsson

Hringhorni

438

Óskar Birgisson

Rimmugýgur

387

Ísleifur Gissurarson

Rimmugýgur

376

Guðmundur Steinar Jóhannsson

Hringhorni

374

Víðir Reynisson

Hringhorni

263

Langbogi. Opinn flokkur kvenna.

Elín Reynisdóttir

Rimmugýgur

243

Guðlaug Bergsveinsdóttir

Hringhorni

199

Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir

Hringhorni

122

 

 
Safnanótt 2009
fimmtudagur, 19 mars 2009

Rimmugýgur var í Sögusafninu í Perlunni 13. febrúar síðastliðinn á Safnanótt 2009 í Reykjavík. Félagar úr Rimmugýgi mættu á svæðið og blönduðu sér saman við brúður og muni á safninu. Hefur Rimmugýgur verið á Sögusafninu undanfarinn ár þegar Safnanótt stendur yfir og hefur það vakið mikla lukku meðal gesta safnins að sjá bæði fræga viðburði úr sögu Íslands setta upp og jafnframt lifandi víkinga innan um.

Sögusafnið er staðsett í Perlunni og er vefslóðinn á það er www.sagamuseum.is

Plágan

Smellið á mynd til að skoða myndir frá safnanótt 2009

 
Nýliđar
föstudagur, 30 janúar 2009

Rimmugýgur á við sérkennilegan velmegunarvanda að stríða þessa dagana. Vegna mikillar aðsóknar nýrra bardagamanna getum við ekki tekið við fleiri nýliðum í vetur. Markmið okkar er að geta tekið vel á móti áhugasömu fólki og leiðbeint því sem best. Nú þurfum við hins vegar að einbeita okkur að þeim sem þegar eru komnir þannig að þeir verði komnir vel á veg í sumar til að geta tekið þátt í því sem í boði er. Stefnt er að því að fá erlendan þjálfara í mars og þá verða allir sem vilja taka þátt í æfingatörn að hafa lokið grunnþjálfun.

Næst verður tekið á móti nýjum bardagamönnum þriðjudaginn 1. september.

 
Miđaldastemning á Hansahátíđ 4. október
ţriđjudagur, 30 september 2008

Laugardaginn 4. október verður haldin Hansahátíð í Hafnarfirði. Hátíðin fer fram í Pakkhúsinu við Vesturgötuna og á hinu nýuppgerða torgi Bjarna Riddara. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá, blöndu skemmtunar og fróðleiks þar sem þema dagsins verður Hansakaupsstaðurinn Hafnarförður á miðöldum.

Á hátíðinni mun tónlistafólk flytja miðaldatónlist, fræðimenn munu halda fyrirlestra og kynningar á matargerð miðalda, ölgerð og vopnaburð. Á Torginu mun Skylmingadeild FH sýna vopnfimi, götulistarhópur kemur á svæðið með m.a. eldgleypi auk fleiri atriða. Þá verður, í samstarfi við Veitingarhúsið Gamla Vínhúsið, gestum boðið að smakka á miðaldaréttum
 
Einnig verður hægt að skoða og versla handverk frá handverksfólki Rimmugýgjar.
 
Hansahátíðin er í umsjá Byggðasafns Hafnarfjarðar og fer dagskráin fram milli kl. 13 – 17 og er aðgangur ókeypis.
 
Bogaćfingar
ţriđjudagur, 09 september 2008

Æfingar í bogfimi með víkingaaldarboga hefjast að nýju í Dverg miðvikudaginn 10. september. Æft verður á miðvikudögum í vetur milli 20.00 og 22.00.

 
Moesgaard sumariđ 2008
ţriđjudagur, 09 september 2008

Rimmugýgur hélt til Moesgaard að venju þetta sumar og tók þátt í einni af stærstu víkingahátíðum sumarsins, stóð hátíðin í viku. Voru á sjöunda hundrað víkinga svæðinu og af þeim voru um 340 bardagamenn. Vikan byrjaði með stífum æfingum í skóginum þar sem bardagamenn reyndu krafta sína og komu sér í bardagaform fyrir helgina. Var fjöldi Rimmugýgjafélaga um 20 en Rimmugýgur hafði verið vikuna áður í Færeyjum sem sérstakt sýningaratriði á tónlistarhátíðinni í Götu, G! Festival (myndir)og héldu margir heim til ísland þaðan svo ekki var fullskipað í Moesgaard. Hér að neðan er myndasyrpa frá Moesgaard sem sýnir lífið á hátíðnni.

 

 

 
Nýliđar velkomnir
sunnudagur, 31 ágúst 2008

Nú er tekið á móti nýliðum hjá Rimmugýgi. Það fólk sem hefur áhuga á að æfa bardagalist víkinga með reyndasta og elsta víkingafélagi á Íslandi er hvatt til að mæta. Við erum með öflugan hóp þjálfara og byggjum á langri reynslu sem við miðlum til nýliða. Nú er tækifæri til að verða hluti af stærsta víkingafélagi landsins og taka þátt í skemmtilegu félagsstarfi. Við ferðumst mikið á sumrin til að taka þátt í víkingahátíðum bæði innanlands jafnt sem erlendis.

Þeir sem hafa áhuga að koma er bent á að mæta á æfingar og tala við okkur og kynnast. Einnig er hægt að senda póst á einhvern af tengiliðum okkar á síðunni. Við erum með góða aðstöðu til æfinga og handverks og hæfa leiðbeinendur.

 
Myndasyrpa af landsmóti hestamanna 2008
laugardagur, 23 ágúst 2008

Hér getur að líta myndaspyrpu af Rimmugýg og félögum á landsmóti hestamanna 2008 á Hellu. Eins og má sjá á myndunum var mjög gaman hjá okkur og skemmtum við okkur mjög vel.

 

 
Bogakeppni
ţriđjudagur, 05 ágúst 2008

Um verslunarmannahelgina var haldin fyrsta árlega Bogakeppni Hringhorna í Fannahlíð rétt norðan við Akranes. Fór þessi keppni frábærlega fram og var keppt í braut með tuttugu og einni stöð þar sem skotið var á þrívíddar- eða skífuskotmörk við mismunandi aðstæður og fengu menn þrjár örvar og mismunandi stig eftir því hvað þurfti margar örvar til að hitta í skotmarkið. Auka stig voru gefin fyrir að hitta í merkt svæði næst miðju. Jafnframt var keppt í hraðskotskeppni þar sem menn fengu eitt stig fyrir hverja ör sem að þeir skutu á einni mínútu og að auki tvö stig fyrir að hitta í skotmarkið. Veitt voru gulll- silfur- og bronsverðlaun fyrir stöðvabrautina og gullverðlaun fyrir hraðskotskeppnina. Sigurvegarar í stöðvabrautinni voru Helgi Hafsteins úr Hringhorna í karlaflokki og Elín Reynis úr Rimmugýgi í kvennaflokki. Í hraðskotskeppninni sigraði Víðir Reynisson úr Hringhorna í karlaflokki og Elín Reynis úr Rimmugýgi í kvennaflokki.

Helgin var einstaklega vel skipulögð af meðlimum vina okkar í Hringhorna, keppnisbrautin frábær og mikið lagt í hana. Staðsetningin var ekki síðri, umkringd skógi þar sem aðstaða var fyrir stórt tjaldsvæði auk þess sem við höfðum heilt félagsheimili fyrir okkur. Við þökkum Hringhorna fyrir frábæra helgi, frábært framtak og hlökkum til keppninnar að ári.

Smelltu á myndina til ađ opna hana !
Smelltu á myndina til ađ opna hana !

 
Moesgaard 2008
föstudagur, 18 júlí 2008

Nú er komið að því að halda á stærstu víkingahátið sem haldin er. Er þessi víkingahátíð haldin í Danmörku nánar tiltekið í skógi sem heitir Moesgaard og er hann suður af Árhúsum. Þarna verða samankomnir langt á 3000 víkinga og af þeim eru um 400 bardagamenn svo bardagasýningar eru með þeim flottari og mestu sem um getur. Verða reistar stórar tjaldbúðir víkinga í miðjum skóginum og ekkert sem heitir nútíma lifnaðarhættir verða á svæðinu, einungis víkingabúðir eins og við höldum að þær hafi verið fyrir þúsund árum.

Hefur Rimmugýgur farið til Moesgaard síðan 1998 og alltaf höfum við jafngaman að koma á svæðið og hitta okkar félaga og bandamenn.

Hér er myndband frá árinu 2007 með bestu atriðum úr bardögunum. Sjást Rimmugýgjarfélagar á mörgum myndskeiðum og má þekkja þá af svörtum skjöldum með rauðum hring og rauðum kross.

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 Nćsta > Endir >>

Úrslit 1 - 25 af 31

Tungumál