Rimmugýgur hélt til Moesgaard að venju þetta sumar og tók þátt í einni af stærstu víkingahátíðum sumarsins, stóð hátíðin í viku. Voru á sjöunda hundrað víkinga svæðinu og af þeim voru um 340 bardagamenn. Vikan byrjaði með stífum æfingum í skóginum þar sem bardagamenn reyndu krafta sína og komu sér í bardagaform fyrir helgina. Var fjöldi Rimmugýgjafélaga um 20 en Rimmugýgur hafði verið vikuna áður í Færeyjum sem sérstakt sýningaratriði á tónlistarhátíðinni í Götu, G! Festival (myndir)og héldu margir heim til ísland þaðan svo ekki var fullskipað í Moesgaard. Hér að neðan er myndasyrpa frá Moesgaard sem sýnir lífið á hátíðnni.
Nýliðar velkomnir
sunnudagur, 31 ágúst 2008
Nú er tekið á móti nýliðum hjá Rimmugýgi. Það fólk sem hefur áhuga á að æfa bardagalist víkinga með reyndasta og elsta víkingafélagi á Íslandi er hvatt til að mæta. Við erum með öflugan hóp þjálfara og byggjum á langri reynslu sem við miðlum til nýliða. Nú er tækifæri til að verða hluti af stærsta víkingafélagi landsins og taka þátt í skemmtilegu félagsstarfi. Við ferðumst mikið á sumrin til að taka þátt í víkingahátíðum bæði innanlands jafnt sem erlendis.
Þeir sem hafa áhuga að koma er bent á að mæta á æfingar og tala við okkur og kynnast. Einnig er hægt að senda póst á einhvern af tengiliðum okkar á síðunni. Við erum með góða aðstöðu til æfinga og handverks og hæfa leiðbeinendur.
Myndasyrpa af landsmóti hestamanna 2008
laugardagur, 23 ágúst 2008
Hér getur að líta myndaspyrpu af Rimmugýg og félögum á landsmóti hestamanna 2008 á Hellu. Eins og má sjá á myndunum var mjög gaman hjá okkur og skemmtum við okkur mjög vel.
Bogakeppni
þriðjudagur, 05 ágúst 2008
Um verslunarmannahelgina var haldin fyrsta árlega Bogakeppni Hringhorna í Fannahlíð rétt norðan við Akranes. Fór þessi keppni frábærlega fram og var keppt í braut með tuttugu og einni stöð þar sem skotið var á þrívíddar- eða skífuskotmörk við mismunandi aðstæður og fengu menn þrjár örvar og mismunandi stig eftir því hvað þurfti margar örvar til að hitta í skotmarkið. Auka stig voru gefin fyrir að hitta í merkt svæði næst miðju. Jafnframt var keppt í hraðskotskeppni þar sem menn fengu eitt stig fyrir hverja ör sem að þeir skutu á einni mínútu og að auki tvö stig fyrir að hitta í skotmarkið. Veitt voru gulll- silfur- og bronsverðlaun fyrir stöðvabrautina og gullverðlaun fyrir hraðskotskeppnina. Sigurvegarar í stöðvabrautinni voru Helgi Hafsteins úr Hringhorna í karlaflokki og Elín Reynis úr Rimmugýgi í kvennaflokki. Í hraðskotskeppninni sigraði Víðir Reynisson úr Hringhorna í karlaflokki og Elín Reynis úr Rimmugýgi í kvennaflokki.
Helgin var einstaklega vel skipulögð af meðlimum vina okkar í Hringhorna, keppnisbrautin frábær og mikið lagt í hana. Staðsetningin var ekki síðri, umkringd skógi þar sem aðstaða var fyrir stórt tjaldsvæði auk þess sem við höfðum heilt félagsheimili fyrir okkur. Við þökkum Hringhorna fyrir frábæra helgi, frábært framtak og hlökkum til keppninnar að ári.
Moesgaard 2008
föstudagur, 18 júlí 2008
Nú er komið að því að halda á stærstu víkingahátið sem haldin er. Er þessi víkingahátíð haldin í Danmörku nánar tiltekið í skógi sem heitir Moesgaard og er hann suður af Árhúsum. Þarna verða samankomnir langt á 3000 víkinga og af þeim eru um 400 bardagamenn svo bardagasýningar eru með þeim flottari og mestu sem um getur. Verða reistar stórar tjaldbúðir víkinga í miðjum skóginum og ekkert sem heitir nútíma lifnaðarhættir verða á svæðinu, einungis víkingabúðir eins og við höldum að þær hafi verið fyrir þúsund árum.
Hefur Rimmugýgur farið til Moesgaard síðan 1998 og alltaf höfum við jafngaman að koma á svæðið og hitta okkar félaga og bandamenn.
Hér er myndband frá árinu 2007 með bestu atriðum úr bardögunum. Sjást Rimmugýgjarfélagar á mörgum myndskeiðum og má þekkja þá af svörtum skjöldum með rauðum hring og rauðum kross.
Landsmót hestamanna 2008
mánudagur, 30 júní 2008
Rimmugýgur verður á landsmóti hestamanna við Hellu nú ár með víkingabúðir og bardagasýningar. Hringhorni frá Akranesi verður einnig með Rimmugýgi á landsmótinu. Verður boðið upp á ýmsa viðburði á daginn svo sem bardagar, leikir og handverk. Verða stórar víkingabúðir á svæðinu og hvetjum við fólk til að koma við hjá okkur og sjá hvað við erum að gera og spjalla við okkur. Sjáumst á landsmóti.